Fara í efni

Bjargvætturinn - sýningaropnun

Til baka í viðburði
Hvenær
28. mars - 30. september
Hvar
Eyrargata 50, 820 Eyrarbakki
Klukkan
14:00-17:00

Bjargvætturinn - sýningaropnun

Bjargvætturinn

Sýning um giftusamleg björgun úr Ölfusá

Sýningin Bjargvætturinn opnar í Byggðasafni Árnesinga laugardaginn 28. mars kl. 14.

Þar segir frá dramatískri björgun Jóns Ingibergs Guðmundssonar (1923–2001) þann 6. september 1944, þegar tveir vörubílar frá Kaupfélagi Árnesinga fóru fram af Ölfusárbrú. Brúin brast undan þunganum, bílarnir féllu í ána og Jón slapp naumlega lifandi. Hann náði taki á varadekki sem flaut með honum niður ána og það varð honum til lífsbjargar. Dekkið, bjargvætturinn sjálfur, hefur varðveist og er aðalsýningargripurinn. Atburðurinn markaði djúp spor í samgöngusögu svæðisins og hefur varðveist í munnmælum og minjum.

Sýningin er í Kirkjubæ, litla timburhúsinu vestan við Húsið á Eyrarbakka og hægt að sjá hana yfir páska og áfram í sumar.

Safnið verður opið um og fyrir páska frá 28. mars fram til 6. apríl kl. 13–17. Engin aðgangseyrir er á safnið á opnunardag sýningarinnar. Verið velkomin!

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll