Fara í efni

Útgáfugleði Blúndu og blóma í Sigluvík

Til baka í viðburði
Hvenær
6.- 8. nóvember
Hvar
Klukkan
19:30-17:00

Útgáfugleði Blúndu og blóma í Sigluvík

Þann 6.-8. nóvember næstkomandi fögnum við 14. útgáfuári Blúndu og blóma með nýjum árgangi dagatala, korta o.fl. fyrir fagurkera og unnendur stemningarmynda og orðaperla.
Við bjóðum af þessu tilefni til einstakrar handverksveislu og hamingjustunda í Sigluvík á Svalbarðsströnd, 606 Akureyri, að þessu sinni verða sýningaraðilar út um alla efri hæð íbúðarhússins og í skemmunni norður af húsinu einnig.
 
Sýningaraðilar:
❄ Blúndur og blóm - Kristín S. Bjarnadóttir
❄ Draumablá - Agnes Ýr Sigurjónsdóttir
❄ Elísabet Jóhanna Zitterbart - Handverkskona
❄ Garðurinn minn - Heiðrún Sigurðardóttir
❄ Glólist - Gló Inga Lófalestur, englaorka og handverk
❄ KAOS - Íslensk hönnun og handverk - Kamilla Ósk Heimisdóttir
❄ KRÓ Design - Kjartan Reynir Ólafsson
❄ LINDA ÓLA art - Linda Björk Óladóttir
❄ Rósalína - Sólveig Guðmundsdóttir
❄ Selbuvettlingar fyrir frið - Kristín Sæm.
❄ Vonarbrú - notað skart, gamalt jólaskraut, ýmiskonar handverk, bækur og skrautmunir. Allt til styrktar barnafjölskyldum í neyð á Gasa.
❄ Sælkerahornið - Kjartan Valur Birgisson, fjáröflun
❄ Flóamarkaðurinn í Sigluvík, í skemmunni við veginn, verður einnig opinn á sama tíma.
 
Opnunartímar Útgáfugleðinnar 🌲
❄Föstudagskvöldið 6. nóv. kl. 19:30-22:00.
❄Laugardagurinn 7. nóv. kl. 13-17.
❄Sunnudagurinn 8. nóv. kl. 13-17.
 
Útgáfugleðin er margrómuð fyrir einstaka stemningu enda ekki á hverjum degi sem boðið er heim á slíka viðburði.
Við sýningaraðilar munum taka á móti ykkur með sól í hjarta og hægt verður að gera góð kaup, hvort heldur sem er fyrir ykkur sjálf eða finna eitthvað fallegt í jólapakkana. Úr nógu verður að velja og eitthvað verður hægt að fá sér líka gott í gogginn af sælkeraborði Kjartans Vals.
Ilmandi kaffi og piparkökur 🌿
Verið hjartanlega velkomin til okkar!
Kristín, Birgir og gestasýnendur
 
****************
Næg bílastæði, leggja má bílum á tún eins og þarf.
Aðgát við bæjarlæk sem rennur meðfram heimreið og undir hana áður en komið er heim á hlað.
Þrátt fyrir útiljós verður nokkuð dimmt úti á föstudagskvöldinu, munið ljósin í símunum ykkar.
Við þiggjum með hlýjum þökkum að þið látið fleiri vita af og bjóðið ættingjum og vinum með ykkur hingað

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri