'Fimmta svítan' Bach í kirkjum Eyjafjarðar
‘Fimmta svítan’ - Bach í KaupangskirkjuHin magnaða sellósvíta nr. 5 í c-moll, BWV 1011 hljómar í Kaupangskirkju (um 3 km frá Akureyri) nk. fimmtudag 20:00 - 20:30
Ólöf Sigursveinsdóttir leikur Bach í völdum kirkjum Eyjafjarðar og hóf 'farantónleikaröð' sína með því að fræða leikskólabörn um hjónin Bach. Þaðan fór hún í Svalbarðskirkju sl. föstudag og nú er komið að Kaupangskirkju sem stendur nær Akureyri (steinsnar frá Skógarböðunum)
Upprunaleg handritS: Ólöf sýnir handriti Önnu Magdalenu Bach virðingu með því að tileinka sig handriti hennar um þessar mundir - það eru sannar eftirritanir á tónsmíðum mannsins hennar frá tímabilinu 1727-1731 (BWV 1007-1012) sem ekki fyrirfinnast í frumhandritum. Ólöf miðlar til gesta nokkrum staðreyndum tengdum þeim hjónum og nótnahandritinu
Kaupangskirkja Að þessu sinni er það Kaupangskrikja sem veitir Ólöfu innblástur til að flytja fimmtu svítuna sem er magnað tónverk í sex þáttum og tekur flutningurinn um hálftíma Kaupangur er forn kirkjustaður, fyrst getið í Auðunarmáldaga 1318 og kirkjan í kaþólsku helguð Maríu Guðsmóður og Ólafi helga Noregskonungi. Steinkirkja þessi tekur um 90 manns í sæti og var vígð árið 1922. Hún er um margt sérstök í útliti þar sem turninn er sterkt einkenni á vinstri hlið kirkjunnar.
Upplýsingar um tónleikana:
6152231 (Ólöf)
berjadagar.artfest@gmail.com
www.olofsigursveinsdottir.com Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög vel þegin.//Tónleikaröðin fer undir merkjum Berjadaga - Félags um tónlistarhátíð.