'Fimmta svítan' Bach í kirkjum Eyjafjarðar
'Fimmta svítan' er hugmynd Ólafar Sigursveinsdóttur sellóleikara og frumkvöðul í sígildri tónlist hérlendis. Hún stefnir á að leika svítur Bachs í völdum kirkjum í Eyjafjarðarsveit. Sellósvíta nr. 5 í c-moll, BWV 1011 hljómar í Svalbarðskirkju á Svalbarðsströnd, rétt fyrir neðan Safnasafnið nk. föstudag, 10. Júlí kl. 20:00
Ólöf sýnir handriti Önnu Magdalenu Bach virðingu með því að tileinka sig rithönd hennar sem eru eftirritanir á tónsmíðum mannsins hennar frá tímabilinu 1727-1731 (BWV 1007-1012). Ólafar miðlar til gesta nokkrum staðreyndum tengdum þeim hjónum og nótnahandritinu.Að þessu sinni er það Svalbarðskirkja sem veitir Ólöfu innblástur til að flytja fimmtu svítuna sem er magnað tónverk í sex þáttum og tekur flutningurinn um hálftíma Kirkjan var vígð 30. maí 1957 og er steinkirkja af stærri gerðinni, 115 m2. Hæð kirkjunnar er 17 m. Hún er teiknuð af Bárði Ísleifssyni og tekur hún um 90 í sæti. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög vel þegin.
Tónleikaröðin fer undir merkjum Berjadaga - Félags um tónlistarhátíð.
Allir velkomnir! Frjáls framlög vel þegin.