Sumarsýning í Listakoti Dóru: Agnes Magnúsdóttir - Líf og störf
Opnun árlegrar þematengdrar sumarlistasýningar í Listakoti Dóru í Vatnsdal í Húnabyggð. Sýningin í ár er helguð minningu Agnesar Magnúsdóttur. Um er að ræða samsýningu listamanna af Norðurlandi vestra og víðar, sem túlka sögu Agnesar í litum og efni.
Agnes Magnúsdóttir er líklega þekktust sem fórnarlamb síðustu aftöku á Íslandi árið 1830. Listasýningin beinir sjónum að lífi og störfum Agnesar, sem og að kveðskap hennar. Inn í þetta fléttast tíðarandinn, vistaböndin og líðan þjóðarinnar eftir Móðurharðindin og kuldaskeiðið í framhaldi að því.
Listakot Dóru er staðsett 2 kílómetra frá þjóðvegi 1, í mynni Vatnsdals. Sýningin opnar með viðhöfn þann 4. júlí kl 13.00, en verður síðan opin til 20. september. Opið verður alla daga nema mánudaga frá klukkan 13.00 til 18.00.