Fara í efni

Slægjukvöldskemmtun og Tónlistarbingó

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 24 október
Hvar
Klukkan
20:00

Slægjukvöldskemmtun og Tónlistarbingó

Fögnum fyrsta vetrardegi í Skjólbrekku

Á fyrsta vetrardegi, laugardagskvöldið 24. október, ætlum við að fagna vetri saman í Skjólbrekku.

Að þessu sinni verður ekki ball, en þess í stað verður boðið upp á ókeypis kvöldskemmtun!

Dagskrá

20:00 – Húsið opnar 🤠

20:15 – Létt og laggott tónlistarbingó til að koma okkur í gírinn 🎶

21:00 – Uppistand með Heimamönnum 🎤

Heimamenn eru hópur heimafólks frá Akureyri sem gerir grín að lífinu og öllu sem því fylgir.

Frítt inn og gestum er velkomið að koma með eigin drykki. 🥂

Húsið verður opið til klukkan 23:30.

Jón Atli verður klár á leigubílnum allt kvöldið. Sími: 781-1259.

Hlökkum til að sjá ykkur! 💃🏻

Tilboð í Jarðböðunum við Mývatn

Jarðböðin verða í slægjustuði þessa helgi og bjóða upp á eftirfarandi:

🍣 Sushi: Föstudags- og laugardagskvöld verður sushi á boðstólum á veitingastaðnum í Jarðböðunum. Mikilvægt er að panta borð fyrirfram.

🧖🏼‍♀️ 25% afsláttur af aðgangi í böðin: Jarðböðin bjóða 25% afslátt með kóðanum SLÆGJUFUNDUR, hvort sem bókað er á netinu eða í afgreiðslu.

🍻 Gleðistund: Gleðistund á barnum frá kl. 17:00–19:00, eins og alla aðra daga.

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri