Slægjufundur 2026
Á fyrsta degi vetrar, 24. október næstkomandi, verður haldinn Slægjufundur í Skjólbrekku kl. 14:00!
Venju samkvæmt leggja allir til veitingar á sameiginlegt kaffiborð - kaffi, te og djús verður á staðnum.
Húsið opnar klukkan 13 og verður blakdeild Mývetnings með kökubasar
hægt verður að greiða með pening eða millifærslu á staðnum.
NÝJUNG!!!! Kræsingin 2026 - í fyrsta sinn verða veitt verðlaun fyrir Kræsinguna. Dómnefnd mun veita verðlaun fyrir glæsilegustu kræsinguna 
Það verður skemmtileg dagskrá fyrir unga sem aldna!
Komum saman og fögnum vetri með góðri stund og enn betri kræsingum

Um kvöldið verður kvöldskemmtun í Skjólbrekku, Tónlistarbingó og uppistand - FRÍTT INN.
Sjá nánar hér: https://www.facebook.com/share/19YCG7kSx1/?mibextid=wwXIfr