Fara í efni

Sæskrímslin á Húsavík

Til baka í viðburði
Hvenær
miðvikudagur, 12 júní
Hvar
Húsavík
Klukkan
17:15-18:15

Sæskrímslin á Húsavík

Risavaxið íslenskt götuleikhús á hafnarbakkanum

Þann 12. júní birtast ótrúlegar kynjaverur í kringum höfnina á Húsavík þegar Listahátíð í Reykjavík, sirkuslistahópurinn Hringleikur og leikgervastúdíóið Pilkington Props taka höndum saman í nýju, íslensku götuleikhúsverki fyrir alla fjölskylduna.

Hvað er að gerast á hafnarbakkanum? Fréttir hafa borist af því að togari á veiðum rétt fyrir utan landgrunnið hafi fengið risavaxna og áður óþekkta lífveru í trollið. Skömmu síðar varð hann vélarvana og sendi út neyðarkall. Togarinn hefur nú verið dreginn í höfn. Á meðan beðið er eftir viðbrögðum vísindamanna við þessu furðufyrirbæri gefst almenningi einstakt tækifæri til þess að berja ferlíkið augum. Eru sæskrímsli úr þjóðsögum okkar komin fram í dagsljósið og hvaða skilaboð færa þau okkur?

Verkið var pantað sérstaklega af Listahátíð í Reykjavík.

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri