Fara í efni

Menningardagar á Raufarhöfn

Til baka í viðburði
Hvenær
2.-11. október
Hvar
Klukkan

Menningardagar á Raufarhöfn

Menningardagar á Raufarhöfn – 2.–11. október 2026

Menningardagar á Raufarhöfn eru árleg menningarhátíð þar sem samfélagið kemur saman og fagnar fjölbreyttri menningu, listum og samveru. Á dagskránni í ár er eitthvað fyrir alla, meðal annars tónlist, myndlist, fræðsla, hreyfing, leikur og notalegar samverustundir.
 
Áhersla er lögð á að hátíðin sé aðgengileg öllum og stefnt er að því að allir viðburðir séu án aðgangseyris, svo sem flestir geti tekið þátt og notið dagskrárinnar.
 
Menningardagarnir eru líka frábært tækifæri til að heimsækja Raufarhöfn, kynnast samfélaginu og upplifa fjölbreytt mannlíf á Melrakkasléttu. Heimafólk og gestir eru hjartanlega velkomnir að taka þátt og njóta þess sem Raufarhöfn hefur upp á að bjóða.

 

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri