Opnun listsýningarinnar Undir í Hvalasafninu á Húsavík
Hvað leynist enn á hafsbotni? Verið velkomin á opnun samsýningarinnar Undir, í Hvalasafninu á Húsavík 3. október 2026 kl. 17:00, þar sem sjá má listrænan afrakstur hafrannsóknarleiðangra í kringum jarðhitasvæði Norður-Atlantshafshryggsins. Unnið er með myndskeið neðansjávarvélmennis af hafsbotni sem ekki hefur verið myndaður áður, sýni úr setlögum og sjó, leifar lífvera, fundna steina og rusl frá mannskepnunni – og einnig hraun og hverahljóð af landi.
Listamenn/Artists: Þorgerður Ólafsdóttir, John Grzinich, Hekla Dögg Jónsdóttir, Gry Bagøien, Angela Snæfellsjökuls Rawlings
Sýningarstjórar/Curators: Auður Aðalsteinsdóttir, Michael Kjær
https://www.hvalasafn.is/undir-under/ https://www.facebook.com/events/1664579024999876
Undir er hluti af norræna rannsóknarverkefninu Öfgar/Extremes og tekst á við áleitnar spurningar sem vöknuðu í þessum rannsóknarleiðöngrum: um merkingu framandi staða og aðstæðna er okkur virðast öfgafullar; um þau efnislegu og óefnislegu áhrif sem slíkir staðir hafa á okkur mennina; og einnig um meðvituð og ómeðvituð áhrif mannsins, líka á stöðum sem hann þekkir ekki og eru enn yfirleitt utan seilingar. Við stöndum frammi fyrir framtíð þar sem aðstæður hér á jörðu verða æ öfgafyllri hvað varðar lífsskilyrði okkar manna og flestra annarra lífvera. Í því samhengi verður landslag á mörkum hins lífvænlega sérlega mikilvægt er við leitumst við að skynja og ímynda okkur það sem er utan mannlegrar þekkingar og stjórnar. Samstarf listafólks og vísindamanna skapar nýjar leiðir til að beina athygli að þeim öfgafullu öflum sem eru að verki á hafsbotni við Norður-Atlantshafshrygginn; að umhverfi sem annars er flestum óaðgengilegt. En ekki síður að þeim öflum sem eru að verki þegar kemur að sambandi manns og annarrar náttúru. Hvers eðlis er það samband og hver er ábyrgð okkar?
Nánar um verkefnið Öfgar: https://uit.no/project/extremes