Fara í efni

Kaffi­hlað­borð og jóla­bóka­upp­lest­ur á Breiðu­mýri

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 15 nóvember
Hvar
Klukkan
14:00-17:00

Kaffi­hlað­borð og jóla­bóka­upp­lest­ur á Breiðu­mýri

Fjáröflunarnefnd Kvenfélags Reykdæla býður til notalegrar samverustundar á Breiðumýri sunnudaginn 15. nóvember næstkomandi, klukkan 14–17. Þar verður boðið upp á upplestur úr nýútkomnum jólabókum, glæsilegt kaffihlaðborð og happdrætti. Gestum gefst því kærkomið tækifæri til að njóta ljúfra veitinga, hlýrrar samveru og komast í jólaskapið.

Kvenfélag Reykdæla hefur um árabil lagt sitt af mörkum til fjölbreyttra samfélagsverkefna og rennur ágóði viðburðarins til styrktar starfsemi félagsins.

Aðgangseyrir er 4.000 krónur fyrir fullorðna og 1.500 krónur fyrir börn á aldrinum 6–12 ára. Aðgöngumiðinn er jafnframt happdrættismiði.

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri