Fara í efni

Jólaglögg

Til baka í viðburði
Hvenær
27. nóvember - 4. desember
Hvar
Hof, Akureyri
Klukkan

Jólaglögg

Umskiptingar snúa aftur með þessa sprenghlægilegu jólasýningu sem snarseldist upp í fyrra!

Óstjórnlega fyndin sketsasýning þar sem ekkert er heilagt, hvorki jólaguðspjallið né jólaferðir til Tene!

Ekki missa af þessari sýningu!

Fullkomlega frumsamin norðlensk framleiðsla úr smiðju atvinnuleikhópsins Umskiptinga.

Sýningin er ekki við hæfi barna.

“ Áramótaskaupið kom snemma í ár - drífið ykkur í leikhús og lengið lífið með hlátrasköllum!!! ” -Oddur Bjarni

“Ég hef ekki lengi heyrt jafnmikin hlátur í salnum og þvílík orka og gleði í leikendum!” - Saga Geirdal Jónsdóttir

“Ég er enn með strengi í hnakkanum eftir ofreynslu hláturvöðva, vó hvað þetta var fyndið og hressandi!” -Þórgnýr Dýrfjörð

“Pör, vinahópar, mæður, Norðlendingar og þið sem eruð í jólastressi… Takið ykkur pásu, bókið ykkur miða og njótið þess að hlæja svolítið hressilega!” -Selma Sverris

Leikarar: Margrét Sverrisdóttir, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Hjalti Rúnar Jónsson, Fanney Valsdóttir, María Pálsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir.

Leikstjórn: Jenný Lára Arnórsdóttir.

Höfundar: Margrét Sverrisdóttir, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Hjalti Rúnar Jónsson, Fanney Valsdóttir, Diana Sus, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jenný Lára Arnórsdóttir.

Miðasala er á mak.is

7900 kr.

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri