Frumsýning á kvikmyndum um merkileg söfn
Nýjar heimildamyndir um Aðalgeir á Mánárbakka og Safnasafnið frumsýndar á Húsavík og Tjörnesi
Ókeypis bíósýning í Eurovision-safninu á Húsavík fimmtudaginn 10. september kl. 20:00
Fimmtudaginn 10. september næstkomandi verða tvær nýjar íslenskar heimildamyndir sýndar í fyrsta sinn opinberlega. Tilefnið er sérstakt, en sama dag fagnar Aðalgeir á Mánárbakka 90 ára afmæli sínu og verður myndin um hann frumsýnd fjöskyldu og vinum í félagsheimili Tjörnesinga, Sólvangi, síðdegis sama dag.
Um kvöldið, kl. 20:00, verður Þingeyingum og öðrum gestum boðið á opna og ókeypis bíósýningu í Eurovision-safninu á Húsavík í boði safnsins, þar sem báðar myndirnar verða sýndar.
1. Mánárbakki: „Hérna týnist ekki tíminn“
Fyrri myndin (35 mín.) fjallar um Aðalgeir á Mánárbakka og hið sérstæða og óviðjafnanlega minjasafn sem hann hefur ræktað af alúð um áratugaskeið, samtímis því að gegna starfi veðurathugunarmanns í 60 ár.
Í myndinni er áhorfendum boðið í áhugavert ferðalag um safnið, gengið um gamla gula húsið Þórshamar og torfbæinn í túninu. Aðalgeir sýnir fjölbreytta og ótrúlega safngripi sem spanna allt frá fyrsta eldspýtustokknum sem hann eignaðist til sjaldgæfra konungsgersema og gamalla handrita. Aðalgeir er ekki síðri sagnamaður en safnamaður og geislar af hlýju og passion fyrir því að bjarga menningararfleifð fyrir komandi kynslóðir.
Eins og Stefán Jón Hafstein, umsjónarmaður myndarinnar, orðar það:
„Hérna týnist ekki tíminn, hann er vandlega varðveittur af einlægum áhuga.“
2. Innsýn í höfuðsetur alþýðulistar
Síðari mynd kvöldsins (45 mín.) varpar ljósi á Safnasafnið á Svalbarðseyri, höfuðsetur alþýðulistar á Íslandi, í tilefni af 30 ára afmæli þess 2025. Veitt er dýrmæt innsýn í hugsjónir og starf frumkvöðlanna Níelsar Hafstein og Magnhildar Sigurðardóttir.
3. Fagmenn að baki framleiðslunni
Myndirnar tvær voru fullgerðar á þessu ári og eru framleiddar af Íslandi ehf. (Stefán Jón Hafstein) og Qjujak (Óskar Páll Sveinsson). Stefán Jón stýrir frásögn og viðtölum en Óskar Páll myndar og klippir af alkunnri fágun.
Upplýsingar um sýninguna á Húsavík:
- Hvar: Eurovision-safnið á Húsavík
- Hvenær: Fimmtudaginn 10. september kl. 20:00
- Aðgangur: Ókeypis og allir velkomnir