Tónleikar Blood Harmony í Vogafjósi
Fimmtudaginn 18. júní mun svarfdælska systkinasveitin Blood Harmony heimsækja Mývatn með glóðvolgan, nýpressaðan vínyl í farteskinu! Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 í Vogafjósi!
Leikin verða lög af nýútkominni plötu, Simple Pleasures, í bland við uppáhalds ábreiður. Við lofum ljúfri og notalegri kvöldstund!
Miðaverð 5000 kr og verður selt inn í hurð.
Hlökkum til að sjá ykkur !
5000kr. Miðar seldir í hurð