Bach og börnin
Barnatónleikar í Brimsölum, samfélagshúsi við Námuveg 8, Ólafsfirði. Þar var áður gamla Skiltagerðin og þarf að keyra nokkuð langt út höfnina til að komast á staðinn. Stórt skilti verður sett nálægt tónleikastaðnum til að skýra frekar staðsetningu.
Ólöf leikur á selló fyrir krakka og fólk á öllum aldri. Hún mun spjalla svolítið um tónskáldið frá Þýskalandi: Jóhann Sebastian Bach og tónlistarkonuna Önnu Magdalenu Bach. Hver voru þessi hjón frú og herra Bach? Hvernig var æska hans? Hvað er Menúett? Afhverju var hann svona músíkalskur? Hvernig hljómar Menúett og eiga íslensk þjóðlög eitthvað skylt við Bachsvíturnar sem hann skrifaði fyrir selló?
Gjaldfrjáls aðgangur