Tónlistarstund IV - Sólrún Bragadóttir a capella
Sólrún Bragadóttir sópransöngkona sem búsett er á Austurlandi, syngur íslenskar perlur og sönglög af ýmsu tagi og fléttar efnisskránna saman með stuttum frásögnum og söngspuna.
Sólrún á að baki glæstan feril á óperu- og tónleikasviðinu. Hún starfaði lengst af í Evrópu en hefur einnig komið fram í Bandaríkjunum og Asíu. Auk fjöldan allan af óperuhlutverkum, hefur Sólrún komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, hérlendis sem erlendis, sungið kirkjutónleika og haldið ljóðakvöld. Sólrún býður einnig upp á sérstaka raddþjálfun sem hún kallar Sálarflæðissöng/tón, sem ekki bara byggir á raddtækni og áralangri reynslu á sviði, heldur líka vinnu með heilun raddarinnar. Hún flutti heim árið 2022 enn mjög virk sem söngvari og býður reglulega upp á klassíska tónleika með fjölbreyttu efni.
Asparhúsið er opið þar til tónleikarnir hefjast.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Vök, Lyng Restaurant og Héraðsprenti.