Svavar Knútur @ Tehúsið
Svavar Knútur, söngvaskáld og annars hvers manns hugljúfi, bregður undir sig betri fætinum í sumar með tónleikaferðalagi vítt og breitt um landið.
Meðal annars kemur hann við á einum af sínum eftirlætis tónleikastöðum, Tehúsinu á Egilsstöðum, þar sem hann mun syngja sín eigin lög í bland við annarra, segja sögur og vera bara almennt hress og hlýlegur.
