Skíðakennsla fyrir fullorðna
Mottumars er framundan og þriðja árið í röð eru snillingarnir Jóhann, Jenný og Lilja með okkur í liði og ætla að vera með skíðakennslu fyrir fullorðna. Við stefnum á miðvikudaginn 4. mars ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir en erum með til vara aukadaga aðeins seinna í mars ef svo ber undir. Nú er tækifæri til þess að smella á sig klossum og skella sér í fjallið!
Hægt er að leigja allan búnað og hægt er að kaupa kort í fjallið bæði í Sundlauginn á Eskifirði á leiðinni upp í skarð og í Skálanum uppi í Oddsskarði.
Hlökkum til að sjá okkur og græjum okkur á skíði og rifjum upp eða lærum rétta takta