Fara í efni

Rock Camp Egilsstaðir

Til baka í viðburði
Hvenær
14.-15. mars
Hvar
Sláturhúsið, Kaupvangi 9 Egilsstöðum
Klukkan
10:00-22:00

Rock Camp Egilsstaðir

Helgina 14.-15. mars fáum við dúndurheimsókn alla leið frá Finnlandi en þá munu sex rokkarar frá finnsku samtökunum Rock Camp koma hingað austur til okkar með vinnusmiðjur í tónlist og ekki hvað síst rokki og þungarokki!

Kennarar smiðjunnar eru allir virkir í rokk- og þungarokksenunni í Finnlandi en vinna jafnframt með ungu fólki í gegnum tónlist hjá samtökunum Rock Camp.

Smiðjurnar verða opnar öllum áhugasömum ungmennum (frá 9. bekk) á öllu Austurlandi og þó víðar væri leitað sem og tónlistarkennurum, ungmennaleiðtogum og öðrum sem vinna með ungu fólki í gegnum tónlist.

Verkefnið er styrkt af Erasmus + og því þátttakendum að kostnaðarlausu.

Dagskrá hefst kl 10 á laugardagsmorgun og lýkur á sunnudagskvöld en auk þess verður kveðjudjammsession seinnipart mánudagsins 16. mars, áður en Finnarnir halda heim á leið.

Hægt er að taka þátt í allri helginni (sem er æskilegt) en einnig hægt að koma inn annan hvorn daginn.

Vinnusmiðjurnar fara fram á ensku.

SKRÁNING ER HAFIN - sjá QR á myndinni.

Rock Camp Egilsstaðir

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað