Fara í efni

Remember the future

Til baka í viðburði
Hvenær
13. maí - 12. ágúst
Hvar
Sláturhúsið
Klukkan

Remember the future

Remember the future - Ingrid Larsen / Solveig Ovanger / Inger Blix Kvammen 13.05.-12.08.2023

Laugardaginn 13.maí kl. 14 opnar myndlistarsýningin Remember the future í Sláturhúsinu Menningarmiðstöð með verkum eftir norsku listakonurnar Ingrid Larsen, Solveig Ovanger og Inger Blix Kvammen.

Þrír listamenn. Ólík tækni og efnisviður. Í sýningunni mætir listin, í sinni marglaga túlkun og þema, óskinni um að viðhalda og aldargömlum hefðum, þekkingu, handverki sem erfst hefur kynslóða á milli - í viðleitni listamannanna til að þær varðveitist og gleymist ekki.

Verkin á sýningunni samanstanda af þrívíðum skúlptúrum og ljósmyndum. Fagurfræðin er viðkvæm og aðgengileg. Handverkið og útfærslan er tímafrek og ítarleg. Tæknin er gömul og ný og efnviðurinn sóttur beint úr náttúrunni eða unnin lífræn efni og steinefni.

Sýningin veitir okkur tækifæri til að velta fyrir okkur og tengja saman hugmyndir fortíðar og framtíðar. Listamennirnir draga fram málefni líðandi stundar séð í ljósi sögunnar. Jafnframt er sjónum beint að þekkingu forfeðra og formæðra okkar og að handverkið megi ekki gleymast og hverfa í innihaldslausri fjöldaframleiðslu samtímans. 

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað