Opið Stúdío!
Með sumardeginum fyrsta á fimmtudaginn og lóu, tjaldi og gæsum komin aftur í fjörðinn bjóðum við ykkur velkomin í opið hús / opna vinnustofu sunnudaginn 26. apríl kl. 14. Á dagskrá verður stutt listamannaspjall, sýnum og segjum, og jafnvel smá tónlist.