Fara í efni

Mugison í Egilsstaðakirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 29 júní
Hvar
Klukkan
20:00

Mugison í Egilsstaðakirkju

Hæ hæ elsku Egilsstaðir. Mikið verður skrítið að vera ekki að spila hjá Dóra í Teehúsinu - é dúdda mía, ég verð að halda mig við þemuna og spila í kirkjunni, hlakka rosalega mikið til - en vildi samt mæla með því að fólk fari á Teehúsið bæði fyrir og eftir tónleikana❤️
Ég er í geggjuðu Tónleika-Maraþoni, ætla að spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt - í sveitunum, bæjum og öllum hverfum - allstaðar er kirkja - svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt - einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Egilsstaðakirkju.
Stuðkveðja, Mugison.
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.500 kr við hurð
4500-5500

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað