Ljósmyndadagar á Seyðisfirði
Ljósmyndadagar á Seyðisfirði 2026 fagna ljósmyndun út frá sjónarhorni staðbundinnar þekkingar og samfélags. Þema hátíðarinnar að þessu sinni, „Staðarvíska“, varpar ljósi á tengsl milli staðar, starfs og fólks. Á dagskrá er ljósmyndasýning með verkum Ásgeirs Jóns Emilssonar (Geira), unnin í samstarfi við Skaftfell og Tækniminjasafn Austurlands.
Á sextán dögum býður hátíðin upp á vinnustofur undir leiðsögn framúrskarandi alþjóðlegra sérfræðinga, auk ókeypis opinna viðburða, þar á meðal sameiginlegs kvöldverðar, kvikmyndasýninga, listamannaspjalla og samvinnuverkefnis þar sem teknar eru portrett myndir.
Nánari upplýsingar munu birtast á samfélagsmiðlum Ströndin Studio.