Langt út / Far out: Edgars Rugajs
Edgars Rugajs þarf varla að kynna fyrir okkar dyggustu tónleikagestum enda er hann einn af upphafsmönnum Langt út / Far out tónleikaraðarinnar. Á síðasta ári kom út hans fyrsta plata, Farewell Dinner,með frumsamdri tónlist. Edgars ætlar að fylgja henni eftir með þrennum útgáfutónleikum og eru tónleikarnir í Sláturhúsinu þann 17.mars næstkomandi númer tvö í röðinni. Á tónleikunum mun Edgars flytja tónlist sem meðal annars var honum uppspretta að eigin tónsmíðum. Tónleikarnir hefjast að venju kl 20:00 og miðaverð er kr 2500.