Fara í efni

Hvað ef það gerðist aldrei - Heiðdís Hólm

Til baka í viðburði
Hvenær
föstudagur, 13 mars
Hvar
Skaftfell, Austurvegur 42, Seyðisfirði
Klukkan
17:00-19:00

Hvað ef það gerðist aldrei - Heiðdís Hólm

Verið velkomin á opnun nýrrar sýningar á Vesturvegg, Skaftfelli Bistró, föstudaginn 13.mars kl. 17:00.
 
Hvað ef það gerðist aldrei er sýning á olíumálverkum eftir Heiðdísi Hólm. Útgangspunktur verka hennar eru upplifanir og ímyndaðar minningar í Seyðisfirði. Innihald verkanna sveiflast á milli léttúðugrar ýkju, myrkrar sjálfsskoðunar og skáldaðra frásagna. Þau endurspegla margbreytileika mannlegs ástands, áhrifa manns á náttúru, áhrifa náttúru á manninn og afleiðingar þeirra áhrifa.
 
Heiðdís Hólm lærði hjá Myndlistarskólanum á Akureyri og Glasgow School of Art. Nýlegar sýningar sem hún hefur tekið þátt í eru m.a. The House í IMT í London; Vona að ég kveiki ekki í í Listasafninu á Akureyri, The Goose That Ruined Everything hjá Sluice og Rúllandi Snjóbolti 16 hjá Ars Longa. Hún hefur tekið þátt í gjörningahátíðunum A! á Akureyri og Do Disturb í Palais de Tokyo í París.
 

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað