Fara í efni

Herrakvöld KFA

Til baka í viðburði
Hvenær
föstudagur, 1 mars
Hvar
Klukkan
19:00

Herrakvöld KFA

Það er komið að fyrsta Herrakvöldi KFA en það verður haldið í Valhöll á Eskifirði þetta árið og svo er planið í framtíðinni að halda það í sitthvorum firðinum á hverju ári.
Við munum sjá til þess að allir þeir herrar sem láta sjá sig munu skemmta sér konunglega en fótboltasnillingurinn Guðmundur Benediktsson ætlar að stýra fjörinu áður en Ingó Veðurguð kemur og spilar á balli fram eftir nóttu.
Á milli þess sem við borðum veislumat og látum veigarnar flæða þá fer fram uppboð á málverkum frá hinum landsþekkta snilling Tolla og glæsilegar treyjur sem strákarnir hafa safnað saman fara einnig á uppboð.
KFA treyjan (og varatreyjan) fyrir 2024 verða einnig til sölu á staðnum.
- Valhöll Eskifirði
- Húsið opnar 18:30
- Frír fordrykkur á milli 18:30 og 19:30
- Borðhald hefst 19:30
- Veislumatur
- Gummi Ben veislustýrir
- Uppboð á Tolla málverkum
- Uppboð á treyjum
- Ingó Veðurguð leikur fyrir dansi
- 14.900kr. í forsölu
- 15.900kr. við hurð
- 3.900kr. frá 23:00 á ball með Ingó Veðurguð
Miðasala hefst á Tix.is seinna í vikunni.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Leikmenn og stjórn KFA

14.990-15990

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað