Fara í efni

Leirlistasmiðja með Antoníu Berg Staðbundinn leir, jarðefni og útibrennsla

Til baka í viðburði
Hvenær
26. júní - 8. september
Hvar
Klukkan
18:00-21:00

Leirlistasmiðja með Antoníu Berg Staðbundinn leir, jarðefni og útibrennsla

Verið velkomin á leirlistasmiðju í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði undir leiðsögn leirkerasmiðsins og myndlistarkonunnar Antoníu Berg.

Námskeiðið samanstendur af tveimur sjálfstæðum vinnustofum og sameiginlegri útibrennslu í september. Hægt er að taka þátt í einni vinnustofu eða báðum, en þátttakendur úr fyrri smiðjum geta komið með verkin sín í útibrennsluna.

Dagsetningar:
26. júní – 18:00-21:00 - Leir og jarðefni úr nærumhverfinu
3 klst. vinnustofa þar sem unnið verður með leir frá Stöðvarfirði og Egilsstöðum, sand, steina og önnur staðbundin efni.

25. ágúst – 18:00-21:00 - Berunesleir, hveraleir, jökulleir og staðbundin efni
3 klst. vinnustofa þar sem þátttakendur kynnast ólíkum íslenskum jarðefnum og gera tilraunir með efni, form og yfirborð.

8. september – Sameiginleg útibrennsla
Útibrennsla / holu- eða tunnubrennsla þar sem unnið verður með glerung, lífræn efni og efnivið úr nærumhverfinu.

Námskeiðið leggur áherslu á sjálfbæra nálgun í leirlist, tengingu við landslagið og skapandi möguleika staðbundinna jarðefna.

Antonía Berg er leirkerasmiður og myndlistarkona, stofnandi og rekstrarstjóri FLÆÐI listafélags og MÓR leirkerasmiðju í Hafnarhúsi í Reykjavík. Hún hefur unnið að rannsóknum á hveraleir, jökulleir og öðrum íslenskum jarðefnum á Íslandi og Grænlandi, og á rætur að rekja austur á Berunes í Berufirði.

Verð: 4.000 kr. á mann
Innifalið er þátttaka í valinni vinnustofu og sameiginlegri útibrennslu í september.

Staðsetning: Sköpunarmiðstöðin / Fish Factory, Stöðvarfirði
Fjöldi þátttakenda: Takmarkaður fjöldi plássa

Skráning og nánari upplýsingar: contact@fishfactory.is

4000

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað