Fara í efni

BRAS Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi 21.09.–16.10.2026

Til baka í viðburði
Hvenær
29. september - 16. október
Hvar
Klukkan
16:00-14:00

BRAS Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi 21.09.–16.10.2026

Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi verður haldin 21.09.–16.10.2026

Barnamenningarhátíðin BRAS verður haldin í níunda sinn í haust. Yfir 30 opnir viðburðir verða í boði víða um Austurland frá miðjum september og fram í miðjan október, auk fræðsluverkefna í leik- og grunnskólum.

Markmið hátíðarinnar er að börn og ungmenni, óháð búsetu, hafi aðgang að fjölbreyttum og faglegum listviðburðum og fái jafnframt tækifæri til að taka sjálf þátt í skapandi starfi.

Sirkus, skrímsli og sæskrímsli

Dagskráin í ár er fjölbreytt. Meðal hápunkta er ný sirkussýning Hringleiks, Shjówmen, sem sækir innblástur í fiskveiðar og sjómennsku. Sýningin verður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og í íþróttahúsinu á Reyðarfirði helgina 26.–27. september.

Rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson heimsækir bókasöfn í Múlaþingi, Skoppa og Skrítla leggja leið sína í Fjarðabyggð og á Minjasafni Austurlands verða skrímsli í forgrunni.

Í Skaftfelli verður hægt að kynnast undraheimi prentlistarinnar og í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði verður meðal annars unnið með pappamassa og brauðdeig.

Fjöllistakonan Kateřina Blahutová heimsækir jafnframt sex byggðarlög, frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, með sæskrímslasmiðju þar sem börn teikna sæskrímsli sem síðan verða hluti af lifandi sýningarrými.

Listir sem hluti af skólastarfi

Fræðsla í gegnum listir hefur frá upphafi verið mikilvægur hluti BRAS.

Sláturhúsið býður í ár öllum nemendum í 6. bekk á Austurlandi upp á sirkuslistanámskeið undir stjórn Hringleiks. Skaftfell stendur fyrir myndlistarnámskeiðinu Hvaðan kemur confetti?, þar sem Hildigunnur Birgisdóttir vinnur með nemendum á yngsta stigi, og Sarah Steinar heimsækir leikskóla með tónlistarleik.

Undirbúningur og listræn stjórnun hátíðarinnar er í höndum fjögurra menningarmiðstöðva á Austurlandi; Sláturhússins á Egilsstöðum, Menningarmiðstöðvar Fjarðabyggðar, Skaftfells á Seyðisfirði og Sköpunarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði. Fjöldi annarra stofnana, félagasamtaka og listafólks kemur einnig að hátíðinni.

SKOÐA DAGSKRÁ 

Nánari upplýsingar um dagskrá og einstaka viðburði má finna á Facebook-síðu BRAS.

Samstarfs- og styrktaraðilar BRAS 2026 eru Austurbrú, Alcoa, Fjarðabyggð, Múlaþing, Vopnafjarðarhreppur, Uppbyggingarsjóður Austurlands, Barnamenningarsjóður, Landsvirkjun og Héraðsprent.

Hægt verður að fylgjast með á Instagram og Facebook

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað