Bjartmar og Bergrisarnir
Bjartmar og Bergrisarnir heimsækja austurland og halda tónleika í Valaskjálf, Egilsstöðum þann 16. júní 2023. Hljómsveitin hefur verið iðin við tónleikahald og útgáfu á nýjum lögum og textum eftir Bjartmar og má þar nefna, Á ekki eitt einasta orð, Af því bara og nýjasta lagið þeirra Veistu hver ég er?.
Einnig mun hljómsveitin fara yfir feril Bjartmars og spila vinsælustu lög hans í gegnum tíðina.
Hljómsveitin er skipuð auk Bjartmars, Júlíus Freyr Guðmundsson bassi og söngur, Birkir Rafn Gíslason gítar og söngur, Daði Birgisson hljómborð og söngur, Arnar Gíslason trommur.
https://tix.is/is/event/15458/bjartmar-og-bergrisarnir/