Frú Nielsen
Frú Nielsen er staðsett í einu sögufrægasta húsi Egilsstaða Nielsenshúsi, elsta húsi bæjarins, sem reist var árið 1944 af Dananum Oswald Nielsen. Húsið hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina og í dag skapar saga þess skemmtilega umgjörð um veitingastaðinn.
Á Frú Nielsen er boðið upp á ferskan og fjölbreyttan mat í afslöppuðu umhverfi, meðal annars poke skálar og salöt, samlokur, tacos, ferska safa, boost og açaí skálar. Á góðviðrisdögum er svo fátt betra en að setjast út á notalega pallinn við húsið, umkringdan trjám, og njóta matar og drykkjar undir berum himni.