Brjóstmyndir II
Brjóstmyndir II
Annar skammtur af Brjóstmyndum frá hönnuðinum og listamanninum Sunnefu Elfars. Verkin eru hekluð úr hágæða bómul í fjölbreyttum fundnum römmum.
Brjóstmyndir Sunnefu voru fyrst sýndar í Skúmaskoti í nóvember á síðsta ári og vakti sýningin mikla athygli og ekki síður umræður gesta. Því þó að efnið sé í raun hversdagslegt bera flest okkar sterkar tilfinningar til þess.
Sunnefa Elfars er menntaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands, hún hefur unnið við fjölbreyttum verkefni á sviði hönnunar og lista oftar en ekki með sterka femíníska skírskotun í gegnum textílinn, miðil sem í alda raðir hefur verið tengdur kvennamenningu og því ekki fengið þá virðingu sem formið á skilið.
Þetta er í annað sinn sem Sunnefa sýnir á vestfjörðum en hún er einmitt alin upp þar og er með sterkar vestfirskar rætur.
Sýningin er á kaffihúsinu Simbahöllinni og er opin á opnunartíma kaffihússins (kl. 10-17 alla daga).
Móðir Sunnefu, Marsibil G. Kristjánsdóttir, og systir, Heiður Embla Elfarsdóttir eru síðan með sýningar á Hótel Sandafelli. Sýningarnar heita Gró og Skeljaverur og húsin í þorpinu. Þær sýningar eru opnar á opnunartíma veitingastaðarins á hótelinu, þ.e. frá kl. 12-22 alla daga.
Ókeypis