Fara í efni

Kerlingarskarðshlaupið 2026

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 23 maí
Hvar
Kerlingarskarð
Klukkan
11:00-17:00

Kerlingarskarðshlaupið 2026

Kerlingarskarðshlaupið: Hlaupið er 14 km langt og fer fram á malarvegi í gegnum hið sögufræga Kerlingarskarð á Snæfellsnesi. Leiðin tengir saman suður- og norðurhluta Snæfellsness og býður upp á stórbrotna náttúru í Kerlingarskarði, þar sem kerlingin sjálf gnæfir yfir hlaupurum.

Staðsetning: Kerlingarskarð/12 mín akstursfjarlægð frá Stykkishólmi

Tímasetning: 23 maí kl: 11:00 2026

Hlaupaleið: Hlaupið hefst á norðanverðu nesinu, við afleggjarann að Kerlingarskarði, og lýkur á sunnanverðu nesinu. Rásmarkið er í um 12 mínútna akstursfjarlægð frá Stykkishólmi. Hlaupið er á grófum malarvegi. Leiðin verður merkt en er auðrötuð þar sem um vegslóða er að ræða.

Vatnsstöðvar: Ein vatnsstöð er í hlaupinu eftir 4,5 km.

Vegalengd: 14 km

Verðlaun: Verðlaun verða fyrir fyrstu þrjú sætin.

Skráning og afhending gagna
Hægt er að skrá sig í hlaupið til 21. maí. Keppnisgögn eru sótt föstudaginn 22. maí milli 16:00 og 19:00 og laugardaginn 23. maí milli 8:00-10:00 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Skráningargjöld verða ekki endurgreidd

Rútuferðir

Rútuferðir verða frá Íþróttahúsi Stykkishólms kl:10:30 og að hlaupi loknu aftur inn í Stykkishólm. Ekki eru bílastæði á svæðinu svo að fólk þarf að koma í rútuna.

Verð: 5000

Allir þátttakendur hlaupa á eigin ábyrgð.

5000kr

Aðrir viðburðir