Fara í efni

Sumarsólstöðuhátíð í Grímsey

Til baka í viðburði
Hvenær
19.-21. júní
Hvar
Klukkan

Sumarsólstöðuhátíð í Grímsey

Grímseyingar halda árlega bæjarhátíð í tilefni af sumarsólstöðunum, venjulega helgina næst sólstöðunum sem falla á 20.–21. júní ár hvert.
Hátíðin 2026 verður helgina 19. - 21. júní.

Á hátíðinni er gestum boðið að taka þátt í fjölbreyttum viðburðum og afþreyingu, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hefst yfirleitt á fimmtudegi og lýkur á sunnudegi.

Hér fyrir neðan er drög að dagskrá. Með fyrirvara um breytingar.

Dagskrá 2026

Föstudagur, 19. júní
Sjávarréttakvöld Kvenfélagsins Baugs kl. 19.00 (húsið opnar 18.30)
Dansleikur í Múla

Laugardagur, 20. júní
Fjölskylduratleikur við Kríuna (börn undir 10 ára í fylgd með fullorðnum) kl. 13.00

Sunnudagur, 21. júní
Í vinnslu.

Athugið að þeir viðburðir sem haldnir eru utandyra eru háðir veðri.

Afgreiðslutímar og þjónusta:
Verslun: Alla daga milli 15.00-16.00
Veitingastaðurinn Krían: Föstudag 12.00-17.00, Laugardag 12.00-21.00, Sunnudag 12.00-21.00
Gallleríið: Opið á meðan ferjan stoppar

Frítt er á viðburði nema Sjávarréttakvöld Kvenfélagsins og ballið.
Leiksvæði fyrir börnin alla daga.

Samgöngur:
Ferjan Sæfari siglir á milli Dalvíkur og Grímseyjar fimm daga vikunnar og Norlandair flýgur milli Akureyrar og Grímseyjar þriðjudaga og sunnudaga, og oft er í boði aukaflug vegna hátíðarinnar.

Allar nánari upplýsingar má finna á www.grimsey.is

Aðrir viðburðir