DAUÐAKAFFI
DAUÐAKAFFI. Miðvikudagur 28. október frá klukkan 16-18.
Í vonarglætu á Dögum Myrkurs ræðum við um dauðann á Skriðuklaustri. Við nálgumst dauðann úr annarri átt í samræðu sem Margrét Pétursdóttir, dánarnærvera, leiðir samkvæmt aðferðafræði sem ryður sér til rúms og birtir óvænt tengsl okkar við dauðann. En Dauðakaffi er ekki sorgarmeðferð heldur spjall um það sem sameinar okkur öll. Oddný Eir leiðir síðan í kjölfarið Vikivöku-ritlistaræfingu og bréfritun til dauðans við opinn eld fyrir þá sem staldra við. Börn velkomin með og þau geta líka hlustað á upplestur á draugasögum Sigfúsar Sigfússonar eða tekið upp sínar eigin draugasögur.

Athugið að Klausturkaffi er lokað. Boðið upp á laufléttar veitingar. Öll velkomin, ung sem aldin. Ókeypis aðgangur. Inngangur um aðaldyr.
ókeypis