Fara í efni

Allt þetta og himinninn líka

Til baka í viðburði
Hvenær
13. júní - 15. júlí
Hvar
Gallerí Gletta
Klukkan

Allt þetta og himinninn líka

Allt þetta og himinninn líka

Emilía Lorange (1938-2025) var alin upp á listaheimili í Reykjavík, faðir hennar Aage Lorange lék af fingrum fram á flygilinn og móðir hennar málaði postulín. Sjálf var Emilía meira undir áhrifum myndlistargyðjunnar. Hún sótti myndlistarnámskeið ýmist hérlendis og erlendis en var mestmegnis sjálfmenntuð í listinni.

Emilía elti ástina til Borgarfjarðar eystra árið 1978 með tveimur af börnum sínum. Á Borgarfirði varð hún undir áhrifum mikilfengleika móður náttúru og saman með listagyðjunni tjáði hún hughrif sín á strigann öll þau tíu ár sem hún bjó þar.

Verk hennar prýddu meðal annars flugstöðina í Bakkagerði, sem Grímur sambýlismaður hennar hafði yfirumsjón með, og eitt þeirra verka er nú til sýnis á flugvellinum á Egilsstöðum.

Árið 1988 brann heimili þeirra, Vinaminni, og flutti fjölskyldan þá í borgina. Mörg af verkum Emilíu glötuðust í eldsvoðanum og lengi vel lá listagyðjan í dvala. Það var ekki fyrr en Emilía kynntist vatnslitum, um árið 2000, sem innblásturinn vaknaði aftur í nýjum miðli.

Eftir andlát hennar fundust tugir vatnslitaverka hjá henni. Úrval þessara verka fá nú að njóta sín á hennar fyrrum heimaslóðum, sem veittu hennar listagáfum svo mikinn innblástur.

 

Megi áhrifin lifa áfram.

 

Sýningin er styrkt af menningarsjóði Múlaþings.

Aðrir viðburðir