Fara í efni

Víkurprjón – Icewear útivistarfatnaður og ullarvörur

Í þjónustumiðstöðinni í Vík í Mýrdal er að finna stærstu verslun Icewear á landinu. Verslunin teygir sig yfir tvær hæðir en á efri hæðinni er glæsilegt outlet þar sem hægt er að gera frábær kaup á gæðavörum á einstökum kjörum. Icewear fatnaðurinn er íslensk hönnun sem tekur mið af síbreytilegu veðurfari og hentar fullkomlega fyrir ferðalanga á leið um einstaka náttúru landsins.  

Verslunin býður upp á einstakt úrval af íslenskum lopapeysum, ullarfatnaði og fylgihlutum, auk þess sem þar er mikið úrval af vönduðum gönguskóm og útilegubúnaði. Til viðbótar við eigin hönnun Icewear er boðið upp á þekkt gæðamerki á borð við Salewa, Helly Hansen og Asolo sem henta vel í hvers kyns útivist. Fyrir þau sem vilja taka eitthvað fallegt með sér heim er einnig í boði mikið úrval af minjagripum, gjafavörum og matvöru.

Þjónustumiðstöðin í Vík er kjörinn áfangastaður til að hlaða batteríin á ferðalaginu. Auk Icewear verslunarinnar er hægt að finna matvöruverslun, notalegt kaffihús og rúmgóða veitingaaðstöðu sem tekur vel á móti bæði minni og stærri hópum. Góð salernisaðstaða og framúrskarandi aðgengi tryggir að allir gestir geti haldið ferðalaginu áfram endurnærðir. 

Þín útivist, þín ánægja.  

 

Hvað er í boði