Fara í efni

Veggur veitingahús

Veggur veitingahús er við Dettifossveg í Kelduhverfi, við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs og hinn svokallaða Demantshring. Náttúran umhverfis staðinn státar af mikilli fegurð og eru nokkrar af helstu náttúruperlum landsins á svæðinu í kringum okkur, til dæmis Ásbyrgi, Vesturdalur, Hólmatungur og Dettifoss.

Við bjóðum upp á spennandi rétti úr héraði sem gestir okkar geta snætt í björtum og fallegum veitingasal með stórkostlegu útsýni yfir Kelduhverfi. Megin uppistaða matseðils Veggs veitingahúss er úr héraði og nærumhverfinu, enda vilja eigendur stuðla að minna kolefnisspori en ella og leitast við að færa söluna nær uppruna sínum. Þannig stuðlum við einnig að atvinnusköpun í fallegu sveitinni okkar. 

Hvað er í boði