Fara í efni

Útilegukortið

Útilegukortið gildir á viðkomandi tjaldsvæðum á meðan tjaldsvæðin eru opin fyrir almenning út árið 2023 en þó ekki lengur en til 15. september. Útilegukortið kostar aðeins 24.900 krónur.

Kortið veitir tveim fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.

Fjölmörg stéttar- og verkalýðsfélög bjóða Útilegukortið til félagsmanna sinna á góðum kjörum. Kannaðu málið og tryggðu þér Útilegukortið fyrir ferðalagið https://www.utilegukortid.is/yfirlit-stettarfelaga/

Njótum íslenskrar náttúru með góðum ferðafélaga

Hvað er í boði