Upplýsingamiðstöð Grundarfjarðar
Starfsfólk á Upplýsingamiðstöðinni leitast við að veita ferðafólki leiðsögn innan og utan bæjarins og um Snæfellsnesið allt. þjónusta og afþreying er fjölbreytt á svæðinu, s.s. verslun, kaffihús og veitingastaðir, hestaferðir, kajakferðir, bátsferðir, hvalaskoðun, sjóstöng og fuglaskoðun. Golfvöllur er í nágrenninu og gönguleiðir frá fyrri tíð liggja upp í fjallgarðinn og útsýni þaðan yfir Kirkjufellið er stórkostlegt.
Opnunartími: mánudaga til fimmtudaga frá 13:00 til 17:00, allt árið..
Uppfærðir tímar: https://www.facebook.com/UpplysingamidstodGrundarfjardar/
Tölvupóstur: touristinfo@grundarfjordur.is