Tjaldsvæðið við Skrímsasetrið
Tjaldsvæðið er staðsett við hliðina á Skrímslasetrinu. Vesturbyggð annast rekstur tjaldsvæðisins. Á staðnum eru salerni, rafmagn og leikvöllur. Tjaldsvæðisgestir geta nýtt sér sturtuaðstöðu í íþróttamiðstöðinni Byltu að Hafnarbraut 15 gegn framvísun kvittunar fyrir greiðslu á tjaldsvæðinu.