Fara í efni

Tjaldsvæðið Kirkjubæ

Tjaldstæðið er skjólgott og rúmt, pláss fyrir alla hvort sem er í litlu tjaldi, húsbíl, hjólhýsi eða tjaldvagni. Mikil áhersla er lögð á að tjaldstæðið er gististaður og þar verður að vera ró frá 23:00 til 7:00 á morgnana. Snyrtiaðstaðan er í þjónustuhúsunum sem eru rúmgóð, upphituð hús. Öllum er frjálst að nota eldhús og borðstofu. Þvottahúsið vekur oft mikla lukku eftir langar ferðir. Ragmagnstenglar eru á hluta af svæðinu, gott að koma snemma til að fá slíkt stæði.

Á tjaldstæðinu eru 7 smáhýsi, sem eru svefnpokapláss, hvert þeirra með fjórum kojum.

Verð 2024:
Tjaldstæði fyrir 13 ára og eldri 2000 isk Sturta 3 mín 300 isk. 6 mínútur 600 isk Þvottavél 950 isk, þurrkari 950 isk Rafmagn 1500 isk (ekki má hlaða bíla á rafmagni tjaldstæðisins)

Hvað er í boði