Fara í efni

Tjaldsvæðið Dalvík

Tjaldsvæðið er við suðurinnkeyrsluna í bæinn (þegar komið er frá Akureyri) alls 9.500 fermetrar að stærð.  Það stendur við hlið íþróttasvæðisins, skólans og Sundlaugar Dalvíkur. Í kring er góð aðstaða til leikja fyrir börn, grasbalar fyrir leiki og boltaspark, gervigras sparkvöllur, körfuboltavöllur og ýmis leiktæki.

Á tjaldsvæðinu er heitt og kalt vatn, sturtur og snyrtingar með aðgengi fyrir fatlaða. Á svæðinu er góð aðstaða innandyra, þar er hægt að þvo leirtau og elda. Innandyra er aðstaða til að setjast niður.

Hægt er að komast í þvottavél, þurrkara og aðstöðu til að þurrka skóbúnað.

Einnig er rennandi vatn fyrir áfyllingar á vatnstanka og niðurfall fyrir losun ferðaklósetta.

Aldurstakmark er 18 ár nema í fylgd með forráðamönnum. Starfsmenn á vegum tjaldsvæðis munu sjá um að rukka aðgang að tjaldsvæðinu. Þeim tilmælum er þó beint til gesta að hafa samband í síma 625-4775 til að greiða fyrir gistingu og afnot af rafmagni eftir því sem við á ef starfsmenn hafa ekki haft samband fyrir brottför. Í Sundlaug Dalvíkur er einnig að finna upplýsingar um Dalvíkurbyggð og nágrenni og starfsfólk leitast við að aðstoða gesti ef upplýsingar vantar.

Opnunartími:
15. maí til 15. September 

Verðskrá 2024:
Fullorðnir: 2.450kr
Börn: Frítt fyrir 14 ára og yngri
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.500kr
Þvottavél: 800kr
Þurkari: 800kr
Rafmagn: 1.300kr
Gistináttaskattur: 333kr á hverja einingu 

Hvað er í boði