Fara í efni

Tjaldsvæðið á Melanesi

Á Melanesi er rekið eina tjaldsvæðið á Rauðasandi. Á fallegu grænu túni sem liggur við sandinn, með dásamlegt útsýni að Látrabjargi. Af tjaldsvæðinu er hægt að ganga í allar áttir og upplifa dýralíf og náttúru.

Salerni og sturtu aðstaða fyrir alla, þ.m.t. aðgengi fyrir hjólastóla. Eldunaraðstaða, þvottavélar, útigrill, bekkir, borð og leiksvæði.

Sellátur er á sandinum og þar liggja hundruðir landsela allt árið um kring. Westfjords Adventures á Patreksfirði bjóða uppá selaferðir á traktor með kerru og eru ferðirnar farnar frá tjaldsvæðinu alla daga, ef pantað er. Frá tjaldsvæðinu er létt 1 km ganga inn að Sjöundá sem er eyðibýli sem  margir þekkja úr sögunni Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson. Frá Sjöundá er svo hægt að ganga lengra, m.a. er miðlungs erfið ganga inn að vitanum í Skor (en sú leið er þó ekki fyrir lofthrædda), og svo er erfið en falleg gönguleið um Sjöundárdal, Ölduskarð og niður í surtarbrandsnámurnar í Stálfjalli.

Opnunartími
Opið frá 15. maí til 15. september.

Verð 2018

Verð fyrir fullorðna:  1.500 kr
Verð fyrir börn:  Frítt fyrir 16 ára og yngri
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.000 kr
Rafmagn:  1.000 kr

Hvað er í boði