Fara í efni

South Iceland Guesthouse

South Iceland Gesthouse hefur til leigu tvö hús. Annars vegar er það Steinar 5 undir Eyjafjöllum mitt á milli Seljalandsfoss og Skógafoss. Þar er um er að ræða gamalt einbýlishús með 15 rúmum í 6 herbergjum, 3 salernum og eldhúsi og sameiginlegu rými sem allt er ný uppgert að innan. Falleg grill og útiaðstaða er í rústum af gömlum burstabæjum bak við hús þar sem náttúran frá Steinafjalli er engu lík. 

Hins vegar er það Leirnakot sem er 35 fm. sumarbústaður í Leirnahverfi. Það er 6 manna hús út í miðri náttúrunni hér í sveitinn með útsýni að Eyjafjallajökli. Gistiheimilið er við þjóðveg 1 beint á mótið veitingastaðnum Gamla Fjósið sem er opinn alla daga frá 11:30 til 21:00. Stutt er í allar helstu náttúruperlur suðurlands og fjölbreytt afþreying í boði í nágrenninu.  

Hvað er í boði