Ferðaþjónusta Skjótur
Ferðaþjónusta Skjótur er á bænum Kjóastöðum á milli Gullfoss og Geysis. Í boði er tjaldsvæði, veitingastaður og einnig er boðið upp ferðir.
Tjaldsvæðið er stórt og þar er rafmagn og frítt wifi. Á svæðinu er veitingastaður, eldhús opið milli 12-15 og 18-23 . Einnig er seyrulosun, mini golf ásamt poolborði á efri hæð og stór hoppudýna sem hefur slegið í gegn hjá börnunum. - frítt í afþreyingu. Það eru nægir staðir að skoða í nágrenni tjaldsvæðisins og þar á meðal eru Geysir, Gullfoss, Laugavatn, Kerlingafjöll og margt fleira. Einnig má finna næga afþreyingu en á næsta bæ er hestaleiga og svo er einn glæsilegasti golf völlur landsins aðeins 3 km frá tjaldsvæðinu.
Boltinn sýndur á tjaldsvæðinu um helgar.