Fara í efni

Tjaldsvæðið Skagaströnd

Tjaldsvæðið er á skjólsælum og rólegum stað efst á Bogabraut og horfir á móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg. 

Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn, spennandi umhverfi og leiktæki af ýmsu tagi.


Aðstaðan 
Í þjónustuhúsinu eru vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til að matast innanhúss fyrir þá sem það vilja og vaskur til uppþvotta. 

Þar má einnig fá margvíslegar upplýsingar fyrir ferðamenn. Framar öllu ber að nefna tvo veglega bæklinga um gönguleiðir á Spákonufellshöfða og á fjallið Spákonufell. Þarna er einnig gestabók og eru ferðalangar beðnir um að rita nöfn sín í hana. 

Ferðafólk er beðið um að ganga vel um og skilja þannig við bæði tjaldsvæðið og þjónustuhúsið þannig að aðrir geti líka notið dvalarinnar.


Opnunartími 
Tjaldsvæði er opið frá 1.maí til 15.september.

Verðskrá 2026:

Fullorðnir: 2.500kr
Börn (14 ára og yngri) Frítt
Aldraðir og öryrkjar 1.600kr
Gistináttaskattur 400 kr pr einingu
Rafmagn 1.500kr
Gjald fyrir afnot af þvottavél 800kr
Gjald fyrir afnot af þurrkara 800kr
Gjald fyrir afnot af sturtu 500kr
 

Hvað er í boði