Sjóminjasafnið Hafnleysa
Sjóminjasafnið Hafnleysa
Sjóminjasafnið Hafnleysa segir sögu sjósóknar í Vík, sem er eina sjávarþorp landsins þar sem
aldrei hefur verið höfn.
Skipakirkjugarður Evrópu
Sýningin hefst á sögu skipsstranda, en vitað er um hundrað og tólf skipsströnd sem urðu hér við
strendur árin 1898 til 1982. Við strendur Vestur-Skaftafellsýslu liggja líklega
hundruð skipa grafin og hefur strandlengjan löngum verið kölluð
skipakirkjugarður Evrópu.
Verslun og útræði í Vík
Stuttlega er farið yfir upphaf verslunar í Vík og til sýnis eru verslunarinnréttingar úr verslun
Halldórs Jónssonar kaupmanns ásamt ýmsum munum frá fyrri hluta síðustu aldar.
Þá geta gestir skoðað líkön af hinum einkennandi sandabátum sem notaðir voru
til veiða og uppskipunar við sendnar strendur Suðurlandsins. Börn geta klætt sig
upp í sjóklæði (stílfærð með nútíma textílefnum) og sett sig í hlutverk
sjómanna fyrri alda.
Skaftfellingur VE33
Það fer ekki fram hjá neinum sem kíkir inn að aðal djásn safnsins er hið rúmlega 100 ára gamla
fraktskip Skaftfellingur. Skipið á glæsta og forvitnilega sögu sem rakin er á
sýningunni. Hér gefur einnig að líta kafla úr heimildamyndinni í Jöklanna
Skjóli frá miðri síðustu öld þar sem Skaftfellingur kemur við sögu; ásamt
upptökum af hinstu heimför skipsins árið 2001. Krakkar geta spreytt sig á því
hvað hinir ólíku hlutar skipsins heita; skoðað vélarhluta skipsins og æft sig í
að búa til pappírsbáta af ýmsum gerðum.
Aðgangseyrir:
Fullorðnir: 500 kr.
Unglingar 12-16 ára: 200 kr.
Frítt fyrir börn yngri en 12 ára
Frítt fyrir eldriborgara
25% afsláttur fyrir hópa stærri en 10
Leiðsögn í boði gegn vægu gjaldi, hafði samband við
kotlusetur@vik.is
Aðgangseyrir rennur allur til reksturs á
safninu og varðveislu menningarminja
Við bjóðum upp á skemmtilegt fræðsluefni fyrir leikskólabörn
og yngstu bekki grunnskóla. Áhugasamir hafi samband við kotlusetur@vik.is. Sjá
kynningarmyndband.
Opnunartímar fylgja opnunartímum Kötluseturs. Sjá á www.kotlusetur.is