Reykjaböð
Reykjaböð er nýtt náttúrulón og heilsulind sem opnar vorið 2026 við rætur Reykjadals í Hveragerði.
Staðurinn hentar einstaklega vel fyrir náttúrulón en mikill jarðhiti er á svæðinu ásamt góðu aðgengi að heitu vatni. Þegar leggja hundruð þúsunda ferðamanna leið sína í Reykjadal til að stunda fjölbreytta útivist og afþreyingu, ganga inn dalinn og baða sig í heita læknum.
Hvort sem þú ert að skipuleggja lengri eða styttri ferð fyrir fjölskylduna, vinina eða vinnustaðinn, þá eru Reykjaböðin kærkomin pása. Aðeins 35 mínútur frá Reykjavík og 75 mínútur frá Keflavík.
↓ Láttu þér líða vel
Hér getur þú notið augnabliksins, endurnærst í heitum lindum og fundið orkuna sem býr í íslenskri náttúru, hvort sem það er á björtum sumarkvöldum eða undir dansandi norðurljósum.
Í Reykjaböðum er boðið upp á fjölbreytt upplifunarsvæði þar sem hver og einn finnur sitt athvarf frá öllum æsingnum.
Baðlónið er tæplega 900 fermetrar að stærð með um 38° gráðu heitu steinefnaríku jarðhitavatni. Á útisvæðinu er viðburðasána með þurrum hita fyrir djúpa slökun, gusur og víxlböð með kuldameðferð. Þar eru einnig kaldar laugar með tveimur hitastigum fyrir byrjendur og lengra komna ásamt endurnærandi Kneipp-vaðlaug með sjávarsteinum þar sem gengið er á milli heitra og kaldra þrepa sem örva blóðrásina og skerpa skynjun.
↓ Gefðu þér tíma
Fáðu sem mest út úr heimsókninni og upplifðu íslenska baðmenningu í sérhönnuðu baðhúsi sem leiðir þig inn í ferðalag slökunar og endurnýjunar. Hvert rými er hannað til að vekja skynfærin og auka vellíðan. Þar getur þú notið valinna meðferða á borð við slakandi nudd, endurnærandi andlits- og líkamsmeðferðum ásamt flot- og vatnsmeðferðum.
Á einstökum lónsbar geta gestir notið svalandi drykkja á meðan þeir baða sig ofan í lóninu. Við hlið lónsbarsins verður útisvið með hljóðkerfi og sýningartjaldi. Reglulega verður boðið upp á fjölbreytta viðburði, þar á meðal flot, gusur, lifandi tónlist o.fl. Í upphafi eða lok heimsóknar er tilvalið að njóta ljúffengra veitinga á veitingastaðnum þar sem boðið verður upp á létta rétti ásamt úrvali heitra og kaldra drykkja.
↓ Tökum landið inn.
Komdu og upplifðu Reykjaböðin þar sem stórbrotin náttúrufegurð, kraumandi jarðhiti, íslensk menning og vellíðan renna saman.