Fara í efni

Tjaldsvæðið Reyðarfirði

Tjaldsvæðið er á fallegum stað við Andapollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við innkeyrsluna í bæinn. Á svæðinu eru sturtur, salernisaðstaða, þvottavél og rafmagn, en losun fyrir húsbíla er hjá þjónustumiðstöð Olís, skammt frá tjaldsvæðinu. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin á sumrin í Íslenska stríðsárasafninu við Heiðarveg. 

Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu: 

Salerni, kalt og heitt vatn, ruslagámar, klóaklosun fyrir húsbíla (400 m), þvottavél, þurrkari, rafmagn, sturta, bekkir og borð, veitingahús (400 m), kaffihús (1 km), vínveitingar (1 km), dagvöruverslun (1 km), bensínstöð (400 m), fjallasýn,
gönguleiðir, leikvöllur (1,5 km), íþróttavöllur (1,5 km), veiði, golf, heilsugæsla (800 m).
 

Opinn eldur bannaður,
hundar í bandi leyfðir.
  

Hvað er í boði