Prestssetrið
Prestssetrið við Akureyri er sögulegt hús frá árinu 1926 sem hefur verið endurnýjað og breytt í glæsilega lúxusgistingu fyrir allt að 28 gesti. Húsið býður upp á 12 svefnherbergi og einstaka aðstöðu fyrir fjölskyldur, vinahópa, fyrirtæki og aðra hópa sem vilja njóta samveru í fallegu og friðsælu umhverfi. Á Prestssetrinu má meðal annars finna heitan pott, sauna, útieldhús, pizzahús / grillhús. Aðeins 10–15 mínútna akstur er til Akureyrar, þar sem gestir hafa aðgang að fjölbreyttri þjónustu, afþreyingu og náttúruupplifunum. Prestssetrið er leigt út í heild sinni og hentar einstaklega vel fyrir lúxushelgar, skíðafrí, ættarmót, námskeið, heilsu- og jógaferðir, hópefli og fyrirtækjaviðburði.